Finnur Geirsson, forstjóri Nóa Siríus, segir umræðu um óhollustu sælgætis oft einhliða og beinar aðgerðir til þess að stýra neyslu fólks ekki skynsamlegar. Fólk sé ágætlega upplýst og ætti að fá að ráða því hvað það borðar, svo lengi sem varan er ekki algjörlega bönnuð.
Sp. blm. Hefur umræða um að sælgæti sé óhollt, og jafnvel beinar aðgerðir til þess að draga úr neyslu þess, ekki áhrif á ykkar starfsemi og framleiðslu?
„Við fylgjumst auðvitað grannt með þessari umræðu og finnst hún vera heldur einhliða og að yfirsýn skorti. Ef farið er af stað með neyslustýringu á annað borð þá er í ansi mörg horn að líta. Umræðan um óhollustu sælgætis byggir á vitneskju um skaðleg áhrif sykurs ef hans er neytt of mikið. Sykur er í fyrsta lagi til staðar í miklum mæli í ýmsum öðrum vörum en sælgæti, eins og unnum mjólkurafurðum, og aðgerðir ættu þá auðvitað að ná til þeirra einnig. Svo eru ýmsar aðrar vörur sem falla undir svipaða skilgreiningu sem óhollusta eins og salt og fita og ef menn eiga að vera samkvæmir sjálfum sér ætti líka að taka á þessum vöruflokkum. Þetta er auðvitað ekki vinnandi vegur. Nú á tímum er fólk ágætlega upplýst og ætti að ráða því hvað það lætur ofan í sig ef varan er ekki bönnuð á annað borð. Það er ágætis regla að gæta hófs, í þessu sem öðru."
Sjá viðtal við Finn Geirsson í Viðskiptablaðinu sem kom út 22. desember sl.