Anders Borg, fjármálaráðherra Svíþjóðar, varar við því að sænska krónan sé orðin það sterk að hún fari að valda hagkerfinu vandræðum. Hvatti hann sænska seðlabankann til að taka gengi krónunnar til skoðunar.
Sænska krónan hefur styrkst um 28% gagnvart evru frá árslokum 2008 og sagði seðlabankastjórinn, Stefan Ingves, nýlega að gengi krónunnar hefði gert bankanum erfitt að ná verðbólgumarkmiði sínu.
Helmingur vergrar landsframleiðslu í Svíþjóð kemur til vegna útflutnings og hefur sterk króna gert sænskum útflytjendum erfiðara fyrir.