Steve Sadove, forstjóri bandaríska lúxus smásölufyrirtækisins Saks, segir að fyrirtækið sé ekki til sölu, að því er fram kemur í frétt Dow Jones fréttaveitunnar.

Baugur Group, sem á 8,5% hlut í Saks, hefur verið orðaður við yfirtöku á félaginu.

Sadove segir segist stefna að því að auka virði hluthafa Saks og ætlar sé að reka fyrirtækið með langtímasjónarmið í huga.