„Ég get staðfest að það er fótur fyrir því að fólk var hvatt til að strika út nafn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á kjörseðlinum,“ segir Anna Kolbrún Árnadóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna. Kemur þetta fram í Morgunblaðinu í dag.

Nafn Sigmundar Davíðs var strikað út 817 sinnum, en það eru 18% þeirra atkvæða sem greidd voru Framsóknarflokknum í Norðausturkjördæmi. Í yfirlýsingu sem hann sendi samflokksmönnum í kjördæmi sínu segir hann að hópur manna hafi hvatt til útstrikana.

Anna Kolbrún segir það einkenna andrúmsloftið í flokknum að ekki sé um frjáls skoðanaskipti að ræða og skoðanakúgunar gæti.

Í frétt Morgunblaðsins er einnig rætt við Pál Marís Pálsson, formann Sambands ungra framsóknarmanna, en hann segist ekki hafa trú á að staðið hafi verið kerfisbundið að því að strika út nafn Sigmundar.