Sverrir Einar Eiríksson hefur sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar umfjöllunar fjölmiðla um stefnu hans á hendur fyrirtækinu, Skorra Rafni Rafnssyni og Jumdon Micro Finance Ltd. Höfðaði Sverrir mál gegn þeim til þess að fá þriðjungseignarhlut sinn í Hraðpeningum viðurkenndan. Hann segir að allur fjárhagslegur ávinningur af málssókninni muni renna til Barnaspítala Hringsins og ABC barnahjálpar.

Sverrir segir meðal annars að Skorri Rafn hafi sölsað undir sig allt hlutafé Hraðpeninga ehf. með ósvífnum hætti. Skorri hafi breytt hluthafaskrá fyrirtækisins með þeim hætti að hann færði hlutafjáreign Sverris yfir á sitt eigið nafn án nokkurrar heimildar. Þetta hafi Skorri gert í algjöru heimildarleysi.

„Fyrir mitt leyti snýst málsóknin fyrst og fremst um að borin sé virðing fyrir grundvallaratriðum í viðskiptum milli fólks og staðfestingu á að treysta megi á íslenskan félagarétt. Til að undirstrika það hef ég ákveðið að láta Barnaspítala Hringsins og ABC barnahjálp njóta alls fjárhagslegs ávinnings af niðurstöðu málsins. Sú ákvörðun byggir einnig á því að markaðssetning Hraðpeninga var mér ekki að skapi enda var hún úr takti við þær ákvarðanir sem voru teknar við stofnun félagsins,“ segir Sverrir Einar.

Segir Skorra hafa misnotað aðstæður

Í yfirlýsingunni fer hann yfir málið og segir að hann hafi stofnað Hraðpeninga ásamt fyrrum viðskiptafélögum sínum, þeim Gísla Rúnari Rafnssyni og Skorra Rafni Rafnssyni, í desember árið 2009 með jöfnum eignarhlutföllum. Tilgangur félagsins hafi fyrst og fremst verið að standa að lánastarfsemi eða svökölluðum smálánum.

Sverrir segir að allt hlutafé hafi verið greitt við stofnun eins og fram komi í stofngögnum. Skömmu eftir stofnun fyrirtækisins hafi hann haldið til útlanda að sinna sameiginlegum verkefnum þeirra þriggja. Hann hafi því hvort verið í aðstöðu til að fylgjast nægjanlega með gangi mála né að koma að markaðssetningu Hraðpeninga og stefnu félagsins almennt. Hann hafi lagt allt traust á viðskiptafélaga sína.

„Skorri Rafn misnotaði sér með ósvífnum hætti þessar aðstæður og það traust og trúnað sem honum var sýndur, með því að sölsa undir sig allt hlutafé Hraðpeninga ehf. eftir að ljóst var að félagið skilaði verulegum hagnaði allt frá upphafi. Skorri Rafn hefur viðurkennt að hafa breytt hluthafaskrá Hraðpeninga ehf. með þeim hætti að hann færði hlutafjáreign mína yfir á sitt eigið nafn. Þetta gerði hann án nokkurrar heimildar og var mér ekki tilkynnt það með nokkrum hætti,“ segir Sverrir.

„Með stefnu minni krefst ég þess að Skorri Rafn Rafnsson bæti það tjón sem hann olli mér með saknæmu og ólögmætu athæfi sínu og mun allur fjárhagslegur ávinningur, sem fyrr segir, renna til Barnaspítala Hringsins og ABC barnahjálpar,“ segir Sverrir að lokum.