Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður fjárlaganefndar Alþingis, gagnrýndi hversu lítið opinberar stofnanir bjóða út í ræðu sinni á fundi Félags atvinnurekenda um útboðsmál í morgun. Þetta kemur fram í frétt Morgunblaðsins í dag. Yfirskrift fundarins var: „Er ríkið lélegur neytandi? Vannýtt tækifæri í innkaupum og útboðsmálum ríkisins.“
Guðlaugur segir skilning vanta á að verið sé að sýsla með peninga allra landsmanna. Sagði hann þær stofnanir sem ekki bjóði út hljóti að hafa of mikið á milli handanna og skera ætti niður fjármagn til þeirra. Í ræðu sinni benti hann jafnframt á að ríkið kaupi vörur og þjónustu fyrir um 88 milljarða króna á ári.
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að einföld skoðun á útboðsmálum ríkisstofnana hafi nýlega verið framkvæmd af hálfu meirihluta fjárlaganefndar og var sendur út spurningalisti til hlutaðeigandi. Þar var einungis spurt um innkaup á þjónustu sem auðvelt ætti að vera að bjóða út, líkt og tölvuþjónusta, raforka, fjarskipti, iðnaðarmenn o.fl.
Spurningarnar náðu til 160 stofnana og var niðurstaðan að innan við 50% var boðið út. Almenn rekstarráðgjöf er sjaldnast sett í útboð, eða í 1,3% tilvika, en fjarskiptaþjónusta er oftast boðin út, eða í 45,6% tilvika. Það sem auðveldlega ætti að vera hægt að bjóða út, líkt og rafmagn, var boðið út í um 7,5% tilvika.
Guðlaugur sagði þetta vera alvarlega stöðu og bætti við að málið sneri ekki síður að heilbrigðri og eðlilegri samkeppni líkt og að hagkvæmari innkaupum.