„Á undanförnum tveimur árum hef ég ítrekað orðið við hjálparbeiðni Reynis Traustasonar, ritstjóra blaðsins, um að koma með fé inn í fyrirtækið DV ehf til að forða því frá gjaldþroti og greiða upp háar skuldir sem safnast höfðu saman í opinberum gjöldum. Hlaupa þessar upphæðir á mörgum tugum milljóna króna,“ segir Þorsteinn Guðnason, fjárfestir og stjórnarformaður DV. Hann vísar þeim ásökunum stjórnenda DV á bug í sinn garð að hann standi fyrir fjandsamlegri yfirtöku á blaðinu. Ekkert sé fjær sanni enda hafi hann ítrekað komið fyrirtækinu til bjargar. Þorsteinn segist ekki hafa ætlað að taka rekstur DV yfir. Þvert á móti hafi hann ítrekað farið fram á það við Reyni að hann greiði skuldir sínar og eignist þannig blaðið.

„Hvernig sá sem ítrekað hefur komið fyrirtæki til bjargar, getur allt í einu orðið óvinurinn undir rúminu, er sjálfstætt rannsóknarefni. Aftur er eina skýringin, að Reynir hafi ekki gert sínum nánustu samstarfsmönnum rétta grein fyrir stöðu mála og sé nú í einhverri örvæntingu að reyna að skrifa söguna eftirá,“ skrifar hann í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér í kjölfar kaupa félagsins Lauga ehf á rúmlega 4% hlut í DV.

Þorsteinn segir félög í sinni eigu hafa keypt hlutafé og lánað umtalsvert fjármagn til hlutafjárkaupa í DV á undanförnum mánuðum, aðallega fyrir orð Reynis. Hefði hann ekki gert það væri DV ekki gefið út í dag.

Skrif Þorsteins setja athugasemd lögmannsins Sigurðar G. Guðjónssonar á Facebook-síðu þingkonunnar Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur um DV í samhengi. Þar gagnrýndi Sigurður skrif Sigríðar í dag og skrifaði:

„Kannski er Reynir einn af þessum mönnum sem þú vilt að geti ráðist að æru þeirrra og mannorði sem honum er illa við með fé annarra, sem hann fær að láni og hirðir ekki um að greiða. Svona bull um aðför að tjáningarfrelsi er dæmigert fyrrir þingmenn sem standa ekki fyrir neitt og verða aldrei annað en pólitískir bullukollar.“

Með yfirlýsingu sinni birtir Þorsteinn bréf sín til Reynis

„Svofellt skeyti sendi ég ritstjóranum hinn 13. febrúar 2014:

„Kæri Reynir,

Ég árétta enn eindreginn vilja Umgjarðar ehf. og Tryggva Geirs ehf., sem við höfum rætt ítrekað frá því snemma sl. haust, að selja hlutabréf okkar í DV ehf. og að þú greiðir skuld þína vegna hlutafjárkaupa Ólafstúns ehf. Í kjölfarið mun ég segja af mér sem stjórnarformaður og boða til hluthafafundar til að kjósa nýja stjórn. Þetta er hér með ítrekað enn einn ganginn og mér þætti vænt um að þú gengir í málið svo fljótt sem kostur er.

Á meðan mun ég gegna skyldu minni sem stjórnarformaður. Ein af ástæðum þess að ég vil selja, sem er þó ekki meginástæðan, er að samskipti stjórnarformanns og framkvæmdastjóra eru ekki sem skyldi. Sökin er beggja sem jafnan er þegar tveir deila, ég firri mig ekki ábyrgð í því. Ég tel að framkvæmdastjóri hafi marga kosti og hann hefur staðið sig vel við fjármálastjórnun við erfiðar aðstæður. Framkvæmdastjóra skortir hins vegar nauðsynlega grundvallarþekkingu í viðskiptastjórnun, ofl., til að sinna þessu starfi að mínu viti. Eins og hefur komið áður fram í okkar samtölum vil ég stíga niður sem stjórnarformaður og gera ykkur kleift að halda áfram að byggja upp félagið, sem þið hafið haft forgöngu um, og gera það eftir ykkar höfði. Þið getið það með því að losa okkur við hlutabréfin.“


Svar barst frá ritstjóranum um hæl, sem hljóðaði svo:

„Sæll Þorsteinn.
Set málið strax í gang.
rt“

Bolaði stjórnarformanni úr stól sínum

Þorsteinn segir að síðan þetta var hafi ekkert gerst fyrir utan það að stjórn DV ehf hafi að undanförnu verið óstarfhæf þar sem hún endurspegli engan veginn vægi hluthafa og vilja raunverulegra eigenda.

Þorsteinn heldur áfram:

„Fyrstu raunverulegu viðbrögð Reynis Traustasonar og félaga við eðlilegum óskum þeirra sem komu félagi hans og DV til bjargar, er að bola undirrituðum úr sæti stjórnarformanns, neita að greiða skuldir og hafa uppi tilhæfulausar ásakanir varðandi síðuna eirikurjonsson.is um gjörning sem fyrir löngu hefur verið til lykta leiddur í stjórn og enginn ágreiningur var um.

Af öllu framansögðu getur hver sem er, mótað sér sína afstöðu til þess hvort ásakanir í minn garð um fjandsamlega yfirtöku eiga við rök að styðjast. Ég er aðeins að gæta minna hagsmuna og hef ekkert annað í hyggju en efla blaðið á komandi mánuðum og misserum.

Að gefnu tilefni skal tekið fram, að kaup Björns Leifssonar og Lauga ehf á litlum hlut í DV ehf eru ekki á mínum vegum. Ýmsir smærri hluthafar afréðu að selja honum sinn hlut í blaðinu og er það aðeins jákvætt merki þess að virkur markaður sé með hluti í þessu fyrirtæki eins og öðrum. Er hann boðinn velkominn í hluthafahópinn, en einstakir hluthafar móta vitaskuld ekki ritstjórnarstefnu fjölmiðla né hafa með mannaforráð að gera.

Þorsteinn Guðnason
stjórnarmaður og hluthafi í DV ehf“