Þótt sumir þættir geti verið ívið betri en reiknað var með og aðrir þætti ívið lakari þá standa áætlanir Icelandair á heildina litið óhaggaðar.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í tilkynningu flugrekstrarfélagsins um fréttaflutningur um laka bókunarstöðu á sumum flugleiðum Icelandair. Það hafi skapað umræðu um að rekstur Icelandair Group hf. sé verri en reiknað var með í áætlunum.

Í tilkynningunni segir:

„Það er rangt, enda hefur ekkert komið fram í nefndum fréttum sem ekki hefur komið fram í tilkynningum frá Icelandair Group til kauphallar. Í tilkynningu sem fylgdi ársuppgjöri Icelandair Group hinn 6. febrúar síðastliðinn kom fram að bókanir fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins færu hægar af stað en ráðgert var. Þegar á heildina er litið standa þessar áætlanir óhaggaðar, þótt sumir þættir geti verið ívið betri en reiknað var með og aðrir þættir ívið lakari. Afkomuspáin hefur því ekki breyst. Eins og fram kom í tilkynningu Icelandair Group til kauphallar dags. 6. febrúar er bókunarstaða fyrir háannatíma ársins og seinni hluta ársins sterkari en upphaflegar áætlanir gerðu ráð fyrir.“