Þróunar- og stækkunarstjóri Apple fyrirtækisins, Adrian Perica, er sagður hafa átt fjölda funda með Elon Musk, forstjóra Tesla, í þeim tilgangi að kaupa bílaframleiðandann. San Francisco Chronicle greinir frá þessu.

Samkvæmt blaðinu hafði Apple fyrirætlanir um að þróa framleiðsluna lengra og á önnur svið. Talskona Tesla neitar fréttunum en Apple vill ekki tjá sig um þær.