Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða eignarráð og nýtingu fasteigna.  Í tilkynningu á vef Viðskiptaráðs segir að samtökin hafi áður skilað inn umsögn um málið er það lá fyrir í samráðsgátt stjórnvalda, en frumvarpið hafi þó tekið nokkrum breytingum síðan þá.

„Með frumvarpinu er stefnt að því að skapa stjórnvöldum betri yfirsýn og möguleika til að stýra þróun eignarráða og nýtingar fasteigna, þ.m.t. jarða, í samræmi við landkosti og með hagsmuni samfélagsins og komandi kynslóða að leiðarljósi,“ segir í tilkynningunni.

Samtökin gera eftirfarandi athugasemdir við frumvarpið:

1. Takmarkanir á stjórnarskráðvörðum rétti

Í umsögninni segir að eignarrétturinn sé friðhelgur samvkæmt 1. mgr. 72. grein stjórnarskrárinnar.

„Eignarréttur jarðeigenda á landi nýtur verndar ákvæðisins enda fela þau í sér mikilsverðar og verðmætar heimildir. Ráðstöfunarréttur eignar hefur verið talinn meðal helstu heimilda eigenda og þurfa takmarkanir á honum að byggjast á lögum sem grundvallast á almannahagsmunum," segir í umsögninni.

„Frumvarpið gerir ráð fyrir umtalsverðum breytingum m.a. á jarðalögum nr. 81/2004. Aðalmarkmið frumvarpsins er sagt vera að stuðla að fjölbreyttum og samkeppnishæfum landbúnaði, náttúruvernd, viðhaldi og þróun byggðar og þjóðfélagslega gagnlegri og sjálfbærri landnýtingu. Að mati samtakanna er óljóst hvernig lagabreytingin tryggir samkeppnishæfni íslensks landbúnaðar og telja vanta upp á rökstuðning hvað það varðar.“

2. Áhrif frumvarpsins

„Samtökin telja mikilvægt að hafa í huga þau afleiddu áhrif sem frumvarpið hefur í för með sér, en lítið sem ekkert er fjallað um þau áhrif, einkum á bændur, í annars langri og ítarlegri greinargerð. Samtökin bentu á þetta sama atriði er frumvarpið lá fyrir í samráðsgátt, og þrátt fyrir að kaflinn sem fjallar um mat á áhrifum hafi lengst töluvert hefur þá helst verið bætt í umfjöllun um áhrif á ríkissjóð. Það er ekki óalgengt að samtökin bendi á skort á mati á áhrifum í umsögnum sínum um hin ýmsu mál, slíku mati er almennt ábótavant eða jafnvel ekki til staðar. Samtökin telja að áður en ráðist er í lagasetningu sem hefur í för með sér talsverðan kostnað sé nauðsynlegt að framkvæmt sé fullnægjandi mat á áhrifum hennar," segir í umsögninni.

Þá segir jafnframt að nágrannalöndin hafi þróað kerfi í þessum efnum sem við mættum gjarnan hafa til fyrirmyndar, en þar er efnahagslegt mat í aðdraganda lagasetningar ítarlegt og nauðsynlegur hluti hennar hverju sinni.

3. Gagnsæi eignarráða

„Samtökin fagna umræðu um aukið gagnsæi. Skilvirk miðlun upplýsinga er ein af grunnforsendum þess að frjáls markaður fái þrifist með eðlilegum hætti. Sú krafa sem uppi hefur verið í samfélaginu um aukið gagnsæi með bættu aðgengi að upplýsingum á öllum sviðum er því bæði sjálfsögð og æskileg. Nýverið tóku í gildi lög um skráningu raunverulegra eigenda. Samkvæmt lögunum ber aðilum að upplýsa um raunverulega eigendur félaga og tilkynna um þá til fyrirtækjaskrár Skattsins. Markmiðið er að tryggja að ávallt séu til staðar réttar upplýsingar um raunverulega eigendur lögaðila svo unnt sé að greina og koma í veg fyrir peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Skyldan nær til allra félaga sem þurfa að skila inn og uppfæra upplýsingar árlega. Í frumvarpinu eru gerðar kröfur um að kaupandi jarðar, sé hann lögaðili, geri grein fyrir raunverulegum eiganda eða eigendum félagsins, með nánar tilgreindum hætti," segir í umsögninni.