Geir H. Haarde, formaður sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra gekkst í dag undir speglunaraðgerð á háskólasjúkrahúsinu í Amsterdam þar sem fjarlægt var illkynja mein í vélinda.

Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að aðgerðin hafi heppnast vel að mati lækna og er Geir væntanlegur heim til stafa síðar í vikunni.

Ráðgert er að hann fari í framhaldsmeðferð eftir u.þ.b. 2 mánuði.