HSBC bankinn, sem er stærsti banki Bretlands, er sagður hafa hjálpað viðskiptavinum sínum að komast hjá skattgreiðslum og þannig fela fleiri milljónir punda frá breskum skattyfirvöldum. Þetta komi fram í leynilegum skjölum sem nú hafi verið gerð opinber. BBC News greinir frá málinu.
Skjölin, sem stolið var árið 2007 af tölvusérfræðingi sem starfaði hjá útibúi bankans í Genf, innihalda upplýsingar um fleiri en þúsund viðskiptavini bankans hvaðanæva að úr heiminum. Samkvæmt þeim var viðskiptamönnum bankans gert mögulegt að fá greitt út í erlendum gjaldeyri af leynilegum bankareikningum sínum hjá útibúi HSBC bankans í Sviss.
Þá segir einnig að viðskiptamenn hafi fengið ráðgjöf hjá bankanum hvernig best væri að komast hjá skattgreiðslum. Forsvarsmenn bankans hafa lítið viljað tjá sig um málið.