Bókmenntalífið er hvergi blómlegra en á Íslandi. Þetta er fullyrt á fréttavef BBC , en þar er greint frá því að hvergi í heiminum séu gefnar út fleiri bækur og hvergi lesnar eins margar bækur og á Íslandi sé miðað við höfðatölu. Í fréttinni er fullyrt að einn af hverjum tíu Íslendingum hafi gefið út bók.
Í fréttinni er fjallað um sögu íslenskra bókmennta, sögu landnámsins sem skráð var á Sturlungaöld. Þá er greint frá því að glæpasögur njóti mikilla vinsælda hér á landi og seljist tvöfalt betur en annarsstaðar á Norðurlöndunum.
Rætt er við rithöfundinn Sölva Björn Sigurðsson sem segir að ástæða mikils bókmenntaáuga megi finna í fortíðinni. „Við erum sagnaþjóð. Þegar það var dimmt og kalt höfðum við ekkert betra að gera en að segja sögur,“ segir hann. Hann þakkar líka Snorra-Eddu og miðaldarsögum það að Íslendingar hafi alltaf haft mikið úrval af sögum til að velja úr.