Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar segir það vekja athygli hversu einbeittir kaupandi og seljandi Bergs-Hugins hafa verið í því að haga málum með þeim hætti að forkaupsréttur Vestmannaeyjabæjar væri á markvissan máta sniðgenginn. Kemur þetta fram í fundargerð bæjarráðs frá fundi sem haldinn var á þriðjudaginn.

Farið var yfir söluna á Berg-Huginn til Síldarvinnslunnar á Neskaupstað á fundinum, en Magnús Kristinsson útgerðarmaður seldi Síldarvinnslunni fyrirtækið fyrir nokkrum mánuðum. Vestmannaeyjabær hefur mótmælt sölunni og telur sig eiga forkaupsrétt að fyrirtækinu.

Í fundargerðinni segir að eignir hafi fyrst verið fluttar á leynd í félög með heimilisfesti í Reykjavík áður en þær voru seldar til Síldavinnslunar.

„Bæjarráð gerir sér fulla grein fyrir því að í máli því sem hér um ræðir er við ramman reipi að draga. Eftir sem áður telur bæjarráð Vestmannaeyja mikilvægt fyrir öll sjávarútvegssamfélög að fá úr því skorið í eitt skipti fyrir öll hvort að sá réttur sem íbúum er falin í lögum um stjórn fiskveiða sé virkur. Ef ekki hlýtur það að verða krafa allra sjávarútvegssveitarfélaga að ný ríkisstjórn geri það að sínu fyrsta verki að auka rétt íbúa þegar kemur að kaupum og sölu aflaheimilda. Sá hái sértæki skattur á sjávarútveg sem stjórnvöld hafa nú heitið að lækka, er einungis ein birtingarmynd óréttlætis gagnvart sjávarbyggðum. Hin hliðin er sú ef málum verður þannig hagað að án fyrirvara geti útgerðarmenn svipt heilu byggalögin tilverugrunni sínum. Slíkt fær ekki viðgengist og um það verður aldrei sátt meðal íbúa sjávarbyggða,“ segir í fundargerðinni.

Svo segir að verði salan á Bergi-Huginn til Síldavinnslunar að veruleika þá sé um mikla blóðtöku að ræða fyrir sveitarfélagið. Samtals tapist 72 störf sem hafi gefið 642 milljónir í laun og beint útsvarstap nemi því um 93 milljónum. Þá hafi Vestmannaeyjahöfn haft um 22 milljónir í tekjur af skipum útgerðarfélagsins árið 2011 og telur bæjarráð að nærri láti að um sé að ræða átta til tíu prósent af hagkerfi Vestmannaeyja.