Tilboð fyrirtækisins Almennrar innheimtu til fólks sem tekið hefur smálán um uppgreiðslu heildarskuldar er að mati Neytendasamtakanna villandi því þar sé einungis átt við skuld og áfallin gjöld við eina tiltekna kröfu ef fólk sé með margar útistandandi kröfur frá fyrirtækinu.

Fólk með margar útistandandi kröfur hafi hins vegar lagt þann skilning í orðalagið að um sé að ræða heildarskuld þess við fyrirtækið enda megi auðveldlega misskilja orðalagið þannig að mati samtakanna.

Segja samtökin því miður ekkert opinbert eftirlit vera með fyrirtækinu sem virðist geta hagað sér að vild, og hafi þar af leiðandi verið mikilvægur hlekkur í því smálánabraski sem fengist hafi að viðgangast hér á landi og reynst mörgum dýrkeypt eins og það er orðað í tilkynningu samtakanna.

Staðlaður texti sem sé til þess fallin að valda misskilningi

Segja samtökin innheimtufyrirtækið vera þessa dagana að senda skilaboð til fólks sem hafi tekið smálán sem séu í innheimtu hjá því staðlaðan texta þar sem lántakendum er boðið að greiða upp heildarskuld með eingreiðslu undir formerkjum „eingreiðslutilboðs“.

Í textanum kemur jafnframt fram að allur áfallinn kostnaður tengdur skuldinni falli niður. Segja samtökin að allir þeir sem hafi leitað til Neytendasamtakanna vegna þessa hafi lagt þann skilning í tilboðið að um sé að ræða endanlegt uppgjör á öllum útistandandi kröfum, enda sérstaklega kveðið á um fjárhæð „heildarskuldarinnar“ og ekki koma fram neinar upplýsingar um kröfunúmer í textanum.

Í öllum málunum sem samtökunum hefur borist tengdum „eingreiðslutilboðinu“ hafa útistandandi kröfur verið fleiri en ein. Heildarfjárhæð allra útistandandi krafna er þar með mun hærri en sem nemur þeirri fjárhæð sem kemur fram í tilboðinu. Lántakendur eru því flestir undir því yfirskini að um kostaboð sé að ræða þar sem dágóður afsláttur yrði veittur gegn uppgreiðslu krafnanna.

Svona hljóða skilaboðin frá Almennri innheimtu:

„Góðan dag

Við höfum til innheimtu skuld frá kröfuhafanum Ecommerce2020 ApS, sem við viljum bjóða þér að klára fyrir fullt og allt . Okkur langar að koma til móts við þig og fella niður allan áfallinn kostnað á skuldinni. Heildarskuldin í dag er X þar af er höfuðstóllinn Y .

Við viljum bjóða þér að klára málið með eingreiðslu að upphæð Y.

Við sýnum því skilning að þú getir kannski ekki greitt upphæðina strax og því getum við sent þér greiðsluhlekk sem þú getur greitt um mánaðarmótin eða samkvæmt samkomulagi.“

Hafa samtökin hvatt lántakendur til að fá nánari skýringar á þessu „kostaboði“ eins og þeir kalla það í ljósi þess sem samtökin kalla umdeild og á tíðum ólögmætir starfshættir fyrirtækisins. Orðalag „eingreiðslutilboðsins“ er að mati samtakanna afar villandi þar sem auðveldlega megi misskilja orðalag um heildarskuld sem allar útistandandi kröfur.

Þar sem Neytendasamtökin segjast hafa séð mörg dæmi um að Almenn innheimta innheimti ólögmæt lán, og hafi þar að auki sett himinháan innheimtukostnað ofan á slíkar kröfur, vara þau fólk við að taka tilboðinu nema ljóst sé að viðkomandi skuldi raunverulega höfuðstól lánanna.