Mengun í neysluvatni á höfuðborgarsvæðinu er einangrað fyrirbæri í kjölfar mikilla vatnavaxta sem leiddi til að gæði neysluvatns hefur nú í nokkra daga ekki staðist ýtrustu gæðakröfur segir í fréttatilkynningu frá Matvælastofnun.

Niðurstöður mælinga á vatninu gefa ekki tilefni til að ætla að hætta sé á heilsufarslegum afleiðingum við neyslu á vatni á svæðinu. Þetta er niðurstaða fundar stjórnskipaðrar samstarfsnefndar um sóttvarnir í morgun.

Segja ekki þörf á að sjóða vatnið

Samstarfsnefndin telur ekki þörf á að almenningur á svæðum þar sem mengunin hefur mælst sjóði vatn fyrir neyslu og ekki sé þörf á sérstökum varúðarráðstöfunum. Einnig er sagt óhætt að nota neysluvatnið í matvæla- og drykkjarframleiðslu, sem er þvert á það sem kom fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur og Viðskiptablaðið sagði frá .

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sagt að borgin hafi lært af því að ekki var greint frá skolpmengun í Faxaflóa í sumar, en eins og Viðskiptablaðið hefur greint frá hefur Eyþór Arnalds frambjóðandi til leiðtogakjörs Sjálfstæðisflokksins sem situr í minnihluta í borginni velt því upp hvort skortur á viðhaldi sé um að kenna. Segir hann borgarbúa eiga rétt á að vita hver ástæðan fyrir menguninni sé.

Engin mengun í Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði

Fundinn sátu fulltrúar sóttvarnalæknis, Matvælastofnunar, heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Kjósarsvæðis, Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis, sýkingavarna- og sýklafræðideildar Landspítala, Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, MATÍS, Veitna OHF og Geislavarna ríkisins.

Á fundinum var rætt um þá mengun sem mælst hefur í neysluvatni í Reykjavík að undanskildum Grafarvogi, Norðingaholti, Úlfarsárdal og Kjalarnesi. Mengun mældist einnig á Seltjarnarnesi en engin mengun hefur mælst í neysluvatni í Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.

Framleiðslu drykkjarvara hætt tímabundið

Veitur ohf. og heilbrigðiseftirlitssvæðin á höfuðborgarsvæðinu munu áfram fylgjast með gæðum neysluvatns og mun birta niðurstöður mælinga á sínum vefsíðum. Samstarfsnefndin mun áfram fylgjast náið með ofangreindri mengun og mun birta leiðbeiningar til almennings þegar tilefni gefst til.

Mengunin hafði töluverð áhrif á framleiðslu drykkjavöruframleiðendanna Coca Cola á Íslandi og Ölgerðar Egils Skallagrímssonar sem hafa framleiðslu sína í Reykjavík, en eins og Viðskiptablaðið greindi frá í morgun hættu bæði félögin framleiðslu í kjölfar fréttanna, en hafa síðan bæði boðað að framleiðsla hefjist að nýju.