Kröfur flugvirkja samsvara rúmlega 30% launahækkun, að mati forsvarsmanna Samtaka atvinnulífsins. Flugvirkjar hafa boðað til verkfalls 16. júní næstkomandi náist ekki samningar fyrir þann tíma. Samtök atvinnulífsins segja kröfur þeirra óraunhæfar. Þær séu langt umfram það sem samist hafi verið um á almennum vinnumarkaði og margfalt hærri en samið hafi verið um við aðrar flugstéttir.

Fram kemur um málið á vef SA að samtökin og Icelandair hafi lagt allt kapp á að leita lausnar sem samrýmist efnahagslegum stöðugleika til lengri tíma. Því miður hafi það ekki gengið.

Á vef SA segir jafnframt að í ljósi þeirrar alvarlegu stöðu sem upp er komin sé óhjákvæmilegt að varpa ljósi á launakjör og launaþróun flugvirkja. Frá árinu 2007 hafi laun flugvirkja hækkað um 62,6% en um 38,5% hjá félagsmönnum ASÍ á almennum markaði.