Frjálshyggjufélagið furðar sig á þeim fljótfærnisvinnubrögðum sem minnihlutastjórn VG og Samfylkingar vill viðhafa við breytingar á lögum um Seðlabanka Íslands.
Þetta kemur fram í ályktun sem félagið sendi frá sér í morgun.
„Ljóst er samkvæmt athugasemdum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabankans að frumvarpið er hroðvirknislega unnið og eingöngu ætlað til að setja af einn embættismann,“ segir í ályktuninni.
„Sú 80 daga minnihlutastjórn sem hugðist bjarga landinu hefur eytt miklu púðri í að setja af þá embættismenn sem ekki hæfa þeirra skoðunum. Á meðan bíða heimilin í landinu eftir aðgerðum í efnahagsmálum.“
Þá segir jafnframt:
„Frjálshyggjufélagið leggur til að minnihlutastjórnin snúi sér að brýnni verkefnum eins og að skera niður í ríkisfjármálunum, minnka álögur á skattborgara og afnema gjaldeyrishöft.
Hins vegar fagnar félagið hugmyndum minnihlutastjórnarinnar um að leggja niður Varnarmálastofnun og hvetjum við hana að ganga skrefið til fulls. Með því sparast hálfur annar milljarður sem meðal annars getur nýst til lækkunar skatta til að létta undir með almenningi.
Ljóst er að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar gaf ráðherrum sínum nokkuð lausan tauminn í ríkisfjármálunum og sést það best á 24 milljóna króna óþarfa eyðslu fyrrverandi heilbrigðisráðherra í ráðgjöf utan ráðuneytisins. Af því fóru 2,5 milljónir í framkomunámskeið fyrir heilbrigðisráðherra og forstöðumenn heilbrigðisstofnana. Þetta harmar Frjálshyggjufélagið og brýnir fyrir komandi ríkisstjórnum þessa lands að eyða ekki peningum skattborgara í eigin þágu.“