Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í gær sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra: „Fólksflutningar núna eru ekkert meiri en í venjulegu árferði. Þeir voru töluverðir árið 2009 og 2010 en það hefur stöðvast miðað við þann mikla brottflutning sem var áður. Þannig að við erum bara á svipuðu róli og var þá." Í tilkynningu frá Samtökum atvinnulífsins segir að þetta sé því miður ekki rétt hjá forsætisráðherra.

Í tilkynningu frá SA segir að á vef Hagstofunnar komi fram að brottfluttir umfram aðflutta hafi verið tæplega 1.400 á fyrstu níu mánuðum þessa árs. Brottfluttir íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta voru 1.320 og erlendir voru 80. Ef fram haldi sem horfir verði brottfluttir Íslenskir ríkisborgarar umfram aðflutta 1700-1800 á árinu öllu. Ef svo fer verður árið 2011 næst mesta brottflutningsár Íslendinga í sögunni í fjölda einstaklinga talið. Einungis árið 2009 er hærra með tæplega 2.500 brottflutta Íslendinga umfram aðflutta en árið 2010 voru þeir 1.700. Í lok september þessa árs voru íbúar landsins 319.090 og fjölgaði um 600 frá áramótum. Ef ekki hefði komið til 1.400 manna brottflutningur umfram aðflutta hefði fjölgunin numið 2.000.