Síldarvinnslan segir fréttir um að Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hefði óskað eftir leiðbeiningum frá Samherja um hvernig blekkja mætti Grænlendinga til að komast yfir veiðiheimildir og kvóta, algjörlega ranga.

„[Í] reyndinni merkilegt hvernig blaðamaður getur lesið þetta út úr þeim tölvupósti sem vitnað er til,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu vegna fyrirspurnar um atburði sem áttu sér stað 30. apríl árið 2014. Eins og lesa má í Fréttablaðinu um málið í morgun neitaði Síldarvinnslan að tjá sig um málið þegar eftir því var leitað af blaðamanni í gær.

Fyrirtækið segir að það hafi átti í farsælu samstarfi við Grænlendinga frá árinu 2003 við rekstur útgerðarfyrirtækis, en árið 2012 festi stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Grænlands, Polar Seafood, kaup á meirihlutanum í útgerðarfyrirtækinu sem þá fékk nafnið Polar Pelagic, en Síldarvinnslan á þriðjungs hlut í því.

Jafnframt segir Síldarvinnslan að stjórn Polar Seafood hafi alla tíð sinnt öllum samskiptum fyrirtækisins við grænlensk stjórnvöld. Stjórnarformaður Polar Seafood er Henrik Leth sem Síldarvinnslan segir lengi hafa verið einn af helstu forystumönnum grænlensks sjávarútvegs.

„Árið 2014 hafði Henrik Leth samband við Gunnþór Ingvason og tjáði honum að á Grænlandi væri í umræðunni að einhverjir áformuðu að koma upp fiskimjöls- og uppsjávarvinnslu í Ammasalik á austurströnd landsins,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

„Taldi Henrik þessi áform mjög óraunhæf og áleit að þau væru sett fram í þeim tilgangi að ná kvóta hjá grænlenskum stjórnvöldum. Til þess að fá nánari upplýsingar um tæknileg málefni og kostnað við uppbyggingu eins og þessa leitaði hann til Gunnþórs Ingvasonar. Gunnþór vissi að Samherji hefði nýlega látið gera áætlanir um slíka uppbyggingu í Marokkó og einfaldast væri að skoða þær. Sendi hann Samherjamönnum tölvupóst þar sem hann bað um að fá þessar upplýsingar þó þær ættu við um uppbyggingu í Afríku.“

Segir Síldarvinnslan að þar með hafi málinu verið lokið að hans hálfu. „Ég leitaði til Gunnþórs um upplýsingar einfaldlega vegna þess að Síldarvinnslan hefur mikla reynslu og þekkingu á uppbyggingu og rekstri vinnslufyrirtækja,“ segir Henrik sjálfur.

„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að hægt væri að búa til svona neikvæða frétt um greiðvikni hans í minn garð. Þetta er sorglegt dæmi um óvönduð vinnubrögð fjölmiðla.“  Segir Síldarvinnslan að þar með megi vera ljóst að orð Gunnþórs Ingvasonar í tölvupóstinum hefðu verið slitin úr samhengi í umræddri frétt og Síldarvinnslan harmi þann villandi og meiðandi málflutning sem birtist í fréttinni.