Stjórn FKA kom saman til fundar í dag og fjallaði um stofnun nýs Þjóðhagsráðs. Niðurstaða fundarins var skýr.

„Ljóst er að við stofnun Þjóðhagsráðs eru stjórnvöld ekki að fara eftir jafnréttislögum nr.10/2008 sem eru í fullu gildi," segir í ályktun stjórnar FKA.  "Þar segir í 15. grein laganna að skipun í nefndir, ráð og stjórnir á vegum ríkis og sveitarfélaga skuli að því gætt að hlutfall kynjanna sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða, í Þjóðhagsráði sitja hins vegar fimm karlmenn.

Með ályktun þessari vill FKA benda stjórnvöldum á að innan vébanda FKA og hvarvetna um okkar fjölbreytta samfélag, eru hundruð kvenna í startholunum, tilbúnar að taka að sér ábyrgð, tilbúnar að leggja hönd á plóg og tilbúnar að taka sæti í Þjóðhagsráði. FKA eflir kraft atvinnulífsins, er leiðandi hreyfiafl sem gerir leiðtogum kleift að sækja fram í fjölbreyttu atvinnulífi. FKA er öflugt tengslanet athafnakvenna úr öllum geirum atvinnulífsins, sem sameinar þær til aukins sýnileika og þátttöku. Er meðal annars bent á þau hundruð nafna sem birt eru á vefsíðu FKA og lista upp konur úr atvinnulífinu, sem hafa boðið sig fram til stjórnarstarfa og bera til þess margvíslega reynslu af stjórnun og rekstri.

Stjórn FKA skorar hér með á stjórnvöld að bregðast við þeirri gagnrýni sem ályktun þessi felur í sér, fjölbreytni er grundvallar forsenda þess að góðar ákvarðanir séu teknar með þarfir heildarinnar að leiðarljósi. Tökum þátt í því að breyta til batnaðar og vera til fyrirmyndar."

Stjórn FKA sendi myndina, sem birtist með fréttinni, með ályktuninni. Á myndinni eru: Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Herdís Jónsdóttir, Kolbrún Hrund Víðisdóttir, Rakel Sveinsdóttir, Danielle Pamela Neben og Anna Þóra Ísfold. Á myndina vantar Áshildi Bragadóttur stjórnarkonu, en hún er stödd erlendis.