Félag atvinnurekenda gagnrýnir harðlega fyrirhugaðar hækkanir á áfengisgjaldi og eldsneytisgjöldum í nýrri yfirlýsingu frá stjórn félagsins og segja jöfnun vera yfirvarp fyrir hækkun skatta á fyrirtæki og einstaklinga.

„FA lýsir skilningi á sjónarmiðum um að jafna gjöldin, en bendir á að það er ekki alltaf nauðsynlegt að jafna gjöld með því að hækka þau lægri. Það má líka lækka há gjöld eða jafnvel mætast á miðri leið. „Jöfnun“ af þessu tagi er aðeins yfirvarp fyrir hækkun skatta á fyrirtæki og einstaklinga,“ segir í yfirlýsingunni sem hvetur jafnframt til endurskoðunar á hækkunum.

„Skattlagning á áfengi á Íslandi er löngu komin út úr öllu korti. Stjórnmálamenn virðast líta svo á að kaupendur þessarar einu neysluvöru megi skattpína endalaust. Gríðarleg hækkun á gjöldum á léttvín er ekki í neinu samræmi við málflutning núverandi stjórnarflokka um hóflega skattheimtu.“

Þó félag atvinnurekenda fagni því einnig að haldið verði áfram í átt að samræmingu þrepa virðisaukaskattsins lýsir félagið yfir vonbrigðum með að engar breytingar skuli fyrirhugaðar á tryggingargjaldi fyrirtækja.