Orka heimilanna hefur gert Orkustofnun og Samkeppniseftirlitinu grein fyrir verulegum misbrestum í verklagi dreifiveitna við móttöku nýrra viðskiptavina og farið þess á leit að þau hlutist til í málinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Dreifiveiturnar hafa að sögn Orku heimilanna frá upphafi setningar raforkulaga hunsað skýr ákvæði í lögunum um notendaskipti. Hafa þau gert það með því að setja alla nýja raforkunotendur sjálfgefið í viðskipti við það sölufyrirtæki sem dreifiveitan er í eignartengslum við.

Þannig hafi þau viðhaldið markaðshlutdeild síns sölufyrirtækis og komið í veg fyrir eðlilega samkeppni að mati fyrirtækisins.
Með aðgerðum sínum hafa dreifiveiturnar skipt markaðnum á milli sinna sölufyrirtækja með markvissum hætti og tryggt sínum sölufyrirtækjum raforkuviðskipti upp á milljarða króna segir í tilkynningunni.

Orka heimilanna hefur nú óskað eftir að eftirlitsstofnanir taki málið til skoðunar og tryggi að farið verði að lögum.

„Við höfum nú fengið upplýsingar um að Orkustofnun sé að hefja skoðun á þessum málum og vonumst til að það leiði til þess að dreifiveiturnar fari að lögum og bjóði nýjum notendum að velja sér söluaðila,“ segir meðal annars í tilkynningu félagsins.

„Það er okkur á móti skapi að þurfa að eyða tíma í að gera athugasemdir til eftirlitsstofnana og viljum við helst geta stundað heilbrigða samkeppni á heilbrigðum markaði.“