Fjármálaráðuneytið hefur boðið landeigendum hluta Geysissvæðisins tugi milljóna króna úr ríkissjóði á þessu ári og því næsta til verndar svæðinu. Ekki er gerð krafa um afsal réttinda landeigenda eins og þeir hafa haldið fram, að því er segir í tilkynningu. Þvert á móti kemur fram í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu að í samningsdrögum um framlagið er sérstaklega áréttað að samkomulagið hafi engin á réttarstöðu aðila og að ríkissjóður eigi engar kröfur á sameigendur vegna framkvæmdanna eftir gildistíma samkomulagsins. Athugasemdin er sú fyrsta sem ríkissjóður fær frá landeigendum við samkomulagsdrögin. Þeir sem eiga hluta Geysissvæðisins á móti ríkinu hafa ekki svarað tilboðinu til þessa.

Í tilkynningu fjármálaráðuneytis segir:

„Telji sameigendur samningsdrögin fela í sér afsal réttinda er fjármála- og efnahagsráðuneytið tilbúið að fara yfir þau mál með þeim. Þetta áréttar fjármála- og efnahagsráðuneytið vegna ummæla talsmanns landeigenda í fréttum Ríkisútvarpsins í dag. Ríkissjóður bauð í febrúar sl . sameigendum að svæðinu umhverfis Geysi að að ráðast í framkvæmdir á svæðinu á þessu ári fyrir tugi milljóna króa. Eins að ríkissjóður bæri allan kostnað vegna reksturs og gæslu á svæðinu. Jafnframt var óskað eftir því að þeir legðu fram upplýsingar um þann kostnað sem þeir hefðu haft af rekstri svæðisins. Sameigendum voru í lok febrúar send samningsdrög þar sem þetta kom fram. Þetta var boðið gegn því að sameigendur féllu frá fyrirhugaðri gjaldtöku og reynt yrði í kjölfarið að ná samkomulagi um framtíðarskipan mála á svæðinu. Vegna umræðu um Geysissvæðið að undanförnu er enn fremur áréttað að ríkið er einkaeigandi þess hluta lands innan girðingar á svæðinu sem hefur mest aðdráttarafl. Innan þess eru helstu hverir svæðisins, þ.e. Geysir, Strokkur og Blesi. Landið umhverfis þessa séreign ríkisins er hins vegar í sameign ríkis og félags landeigenda. Ríkissjóður á fyrir utan séreignina u.þ.b 25% í sameignarlandinu með félaginu.“