Í tilkynningu frá stjórnarformanni Stoða kemur fram að framkvæmdastjóri félagsins, Jón Sigurðsson, hafi síðustu misserin starfað fyrir Stoðir skv. gildandi ráðningarsamningi. Laun framkvæmdastjóra skv. samningnum eru um 5 milljónir króna á mánuði.

„Eftir að nauðasamningar Stoða voru samþykktir fyrr í sumar varð fyrst ljóst að starfsemi félagsins myndi halda áfram. Samkomulag hefur nú verið gert við framkvæmdastjóra félagsins sem felur í sér yfir 70% lækkun á launum hans sem jafngildir þá 1,5 milljónum króna," segir í tilkynningunni sem undirrituð er af stjórnarformanninum Eiríki Elísi Þorlákssyni.

Tilefni tilkynningarinnar er frétt Fréttablaðsins í dag. Í tilkynningunni er jafnframt tekið fram að Stoðir séu ekki í meirihlutaeigu ríkisfyrirtækja eins og haldið sé fram í fréttinni.

„Stjórn Stoða vill ennfremur gera athugasemd við frétt RÚV sl. mánudagskvöld, þar sem því er haldið fram að kröfuhafar Stoða hafi með samþykkt nauðasamninga sett “pottlokið kyrfilega á Stoðir” og hindrað þar með skoðun á starfsháttum félagsins. Þetta er fjarri sanni, enda hafa nauðasamningar ekkert slíkt í för með sér. Síðastliðnar vikur hefur stjórn Stoða látið gera ítarlega skoðun og úttekt á öllu sem viðkemur rekstri og viðskiptum félagsins með tilliti til hugsanlegrar riftunar gjörninga. Niðurstaða þeirrar vinnu, sem unnin er af óháðum endurskoðendum og lögmönnum, mun liggja fyrir bráðlega," segir enn fremur í tilkynningunni.