Málssókn hluta erfingja Sigurðar Hjaltested á hendur Kópavogsbæ er með öllu tilhæfulaus, segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Enn fremur segir að fjárhæð dómkröfunnar sé í besta falli fráleit. Eins og fram kom í fréttum fyrr í dag krefst hópurinn 74 milljarða bóta vegna eignarnáms á Vatnsendalandinu. Kópavogsbær krefjst sýknu af öllum kröfum stefnenda.

„Kópavogsbæ hefur í fjögur skipti verið heimilað að taka land í Vatnsenda eignarnámi. Í öllum tilvikum fóru eignarnám fram á grundvelli eignarnámsheimildar frá opinberum stofnunum og ráðherra. Var Kópavogsbæ skylt að ráðstafa eignarnámsbótum til þinglýsts eiganda Vatnsenda sem jafnframt var ábúandi jarðarinnar,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að aðrir opinberir aðilar sem framkvæmt hafi eignarnám í landi Vatnsenda hafi jafnframt ráðstafað eignarnámsbótum til ábúenda jarðarinnar á hverjum tíma. Þeir opinberu aðilar eru íslenska ríkið, Reykjavíkurborg og Landsvirkjun.

Þá segir í tilkynningunni að öll aðilaskipti að fasteignum séu háð þeirri grundvallarforsendu að aðilar megi treysta á réttmæti upplýsinga úr þinglýsingarbók. Önnur regla myndi leiða til gríðarlegrar óvissu um það kerfi sem gildir um skráningu eignarhalds að fasteignum á Íslandi.

„Kópavogsbær harmar að hann hafi verið dreginn inn í harðvítugar deilur milli erfingja að dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested sem lést árið 1966. Umrætt dánarbú er enn til opinberra skipta,“ segir í tilkynningunni.