Í frétt á heimasíðu Samtaka atvinnulífsins greina samtökin frá því hvernig æskilegt sé að bregðast við komandi niðursveiflu. Samtökin segja að mikilvægt sé að minnka umsvif hins opinbera, skapa svigrúm til að lækka skatta enn frekar og að fjárfesta frekar í innviðum.

„Hið opinbera gegnir mikilvægu hlutverki í almennri hagstjórn og er verkefnið framundan að milda niðursveifluna. Skiptir máli að viðbrögð stjórnvalda við minnkandi tekjuvexti leiði ekki til þess að efnahagslægðin verði dýpri en ella. Mikilvægt er að áherslur stjórnvalda miði að því að draga úr opinberum útgjöldum og skapa þar með rými til að lækka skatta hraðar og meira. Skattalækkanir eru til þess fallnar að styðja við bæði heimili og fyrirtæki í því erfiða umhverfi sem framundan er," segir í frétt á heimasíðu SA.

„Á þessum tímamótum er mikilvægt að draga lærdóm af reynslu síðustu ára. Forgangsröðun stjórnvalda til niðurgreiðslu skulda var mikilvæg. Lágar opinberar skuldir minnka bæði áhættu og losa fjármagn samfara minnkandi vaxtakostnaði. Mikill útgjaldavöxtur undangenginna ára veitti hins vegar þenslunni ekki nægjanlegt viðnám þegar hagvöxtur var sem mestur. Tryggja hefði þurft aðhaldssamari stefnu á síðustu árum og skapa þannig rými til að sporna gegn niðursveiflunni nú."