Ríkisútvarpið hefur sent tilkynningu til Kauphallarinnar þar sem vakin er athygli á meintum rangfærslum í nýbirtri skýrslu nefndar um starfsemi og rekstur Ríkisútvarpsins. Í skýrslunni segir að Ríkisútvarpið geri kröfu um skilyrt viðbótarframlag til næstu fimm ára og í áætlunum félagsins sé gert ráð fyrir verulega hækkuðu ríkisframlagi, þ.á.m. að 3,2 milljörðum króna verði varið til að létta skuldum af Ríkisútvarpinu. Að mati Ríkisútvarpsins er þetta ekki rétt og í tilkynningunni kemur fram að stofnunin hafi vakið athygli nefndarinnar á að fullyrðingar þeirra í skýrsludrögum væru rangar og að þeim væri jafnframt óheimilt með tilliti til laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 að birta upplýsingar sem vörðuðu rekstraráætlanir félagsins, þar með talið ósamþykktar sviðsmyndir, enda höfðu nefndarmenn ritað undir trúnaðaryfirlýsingu þess efnis.

Þá segir í tilkynningunni að hið rétta sé að stjórn Ríkisútvarpsins hefur samþykkt rekstraráætlun fyrir tímabilið 1. september 2015 til 31. ágúst 2016. „Þessi áætlun gerir ráð fyrir að útvarpsgjaldið lækki ekki frekar heldur haldist það óbreytt eins og mennta- og menningarmálaráðherra hefur boðað. Sú áætlun verður uppfærð og lögð fyrir stjórn fyrir árslok og mun þá taka til almanaksársins 2016. Einnig liggja fyrir áætlanir sem gera ráð fyrir viðbrögðum félagsins ef forsendur um óbreytt útvarpsgjald ganga ekki eftir í meðförum þingsins. Þær áætlanir fela í sér umtalsverða skerðingu á þjónustu og dagskrá Ríkisútvarpsins. Í öllum áætlunum stjórnenda Ríkisútvarpsins er gert ráð fyrir hallalausum og sjálfbærum rekstri á næsta rekstrarári, eins og raunin hefur verið á síðastliðnum tólf mánuðum,“ segir í tilkynningunni.