Viðskiptaráð Íslands hefur sent frá sér nýja skoðun þar sem meðal annars er kemur fram að regluverk á Íslandi sé of íþyngjandi.

„Vel mótaðar leikreglur og markviss framfylgni þeirra er grundvöllur góðs samfélags. Umbætur á því sviði eru meðal veigamestu áhrifaþátta framleiðni og þar með hagsældar. Engu að síður er víða pottur brotinn í laga- og regluverksumgjörð hér á landi þrátt fyrir að stór hluti þess regluverks sem íslensk fyrirtæki búa við sé sambærilegur við það sem tíðkast í nágrannalöndunum," segir í skoðuninni.

„Átak og áhersla á einfaldara og skilvirkara regluverk hafa verið meðal loforða síðustu ríkisstjórna, en um þetta segir meðal annars í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar: „Átak verður gert í einföldun regluverks í þágu atvinnulífs og almennings. Ríkisstjórnin leggur áherslu á að stjórnsýsla sé skilvirk og réttlát.” Fögrum fyrirheitum stjórnvalda hefur þó ekki verið fylgt eftir og markvissar aðgerðir í þágu einföldun regluverks hafa setið á hakanum."

„Viðskiptaráð hvetur stjórnvöld til að setja aukinn kraft í einföldun regluverks og móta markvissa heildarstefnu sem fylgt verður eftir á næstu árum svo íslensk fyrirtæki þurfi síður að takast á við óþarflega íþyngjandi og kostnaðarsama reglubyrði sem á endanum skerðir hag og lífskjör almennings."

Skoðun Viðskiptaráðs í heild sinni má lesa hér .