Markaðsstjórar 400 stærstu auglýsenda landsins nefndu Símann oftast sem það fyrirtæki sem stóð sig vel í markaðsmálum á síðasta ári samkvæmt könnun Capacent Gallup en könnunin var gerð í febrúar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Símanum en í úrtaki voru markaðsstjórar 400 stærstu auglýsenda samkvæmt Auglýsingamarkaði Capacent Gallup.

Ennemm sem sér um auglýsingaherferðir Símans var einnig valin besta auglýsingastofan árið 2008 af fólki úr sama úrtaki.