Hækkun stýrivaxta er ekki eins líklegt á næstunni og búist var við og má búast að stýrivextir verði óbreyttir í 6% út þetta ár og líklega fram á það næsta, að mati IFS Greiningar.

IFS Greining segir í Morgunpósti sínum í dag í kjölfar vaxtaákvörðunardags í Seðlabankanum í gær þar sem greint var frá því að stýrivöxtum hafi verið haldið óbreyttum að efnahagshorfur til næstu þriggja ára hafi lítið breyst frá maíspá bankans en horfur séu þó á að vöxtur innlendrar eftirspurnar verði ívið meiri í ár. Þá er bent á að í Peningamálum segir að verðbólguhorfur hafi heldur batnað frá því í vor og búist við því nú að framleiðsluspenna myndist seinna

Þá segir IFS Greining að dregið hafi úr tóni peningastefnunefndarinnar frá fyrri helmingi ársins og vaxtahækkanir ekki eins líklegar á næstunni og búist var við. Miðað við grunnspá bankans er taumhald peningastefnunnar líklega horfið og útlit fyrir að núverandi vaxtastig dugi til að halda verðbólgunni í markmiði. Þrátt fyrir það gæti kröftugur vöxtur innlendrar eftirspurnar á komandi misserum og vaxandi spenna á vinnumarkaði leitt til aukins verðbólguþrýstings og orðið til þess að nafnvextir bankans þyrftu að hækka frekar.