Síldarvinnslan í Neskaupstað hefur birt yfirlýsingu á heimasíðu sinni vegna forsíðufréttar Fréttablaðsins í morgun. Fréttin fjallar um tölvupóst frá Gunnþóri Ingvasyni, framkvæmdastjóra Síldarvinnslunnar, til Aðalsteins Helgasonar, Jóhannesar Stefánssonar og til ónefnds starfsmanns hjá Samherja. Fyrirsögn blaðsins var: Báðu Samherja um ráð til að blekkja veiðiheimildir út úr Grænlendingum og er tölvupósturinn birtur í heild sinni.
Í yfirlýsingunni, sem hefur yfirskriftina Villandi og rangur fréttaflutningur, segir:
„Í morgun birtist frétt um að Gunnþór Ingvason framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hefði óskað eftir leiðbeiningum frá Samherja hinn 30. apríl árið 2014 varðandi það hvernig blekkja mætti Grænlendinga til að komast yfir veiðiheimildir og kvóta. Þessi frétt er algjörlega röng og í reyndinni merkilegt hvernig blaðamaður getur lesið þetta út úr þeim tölvupósti sem vitnað er til.“
Í tölvupóstinum sem Fréttablaðið birtir, og tilkynning Síldarvinnslunnar varðar, segir:
Sælir félagar
Þannig er mál með vexti að vinir okkar í Grænlandi Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjárfestingum, veiðum, vinnslu og hafnarmannvirkjum ef menn myndu vera setja upp fiskimjöls og uppsjávarverksmiðju í Ammasalik austurströnd Grænlands.
Hann er ekki að hugsa um að setja neitt upp, heldur eru einhverjir heimamenn í Grænlandi með einhverja með sér í því að reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum með því að þykjast vera fara byggja upp á austur grænlandi.
Eigið þið ekki tilbúna einhverja svona punkta þó svo að þeir eigi við um afríku.
Þessu svarar Jóhannes Stefánsson: „Það er kannski spurning um að taka frá Marokkó, hvað segirðu um það?“ spyr hann mann með netfangið [email protected].
„ Gunnþór, ertu að leitast eftir einvherju ýtarlegu eða bara í kynningarformi? “ spyr Jóhannes svo Gunnþór, sem svarar. „Nei, bara punktum hvað þarf.“
Í yfirlýsingu Síldarvinnslunnar segir jafnframt:
Síldarvinnslan hf. hefur átt í farsælu samstarfi við Grænlendinga frá árinu 2003 við rekstur útgerðarfyrirtækis. Árið 2012 festi stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Grænlands, Polar Seafood, kaup á meirihlutanum í útgerðarfyrirtækinu sem þá fékk nafnið Polar Pelagic, en Síldarvinnslan á þriðjungs hlut í því. Stjórn Polar Seafood hefur alla tíð sinnt öllum samskiptum fyrirtækisins við grænlensk stjórnvöld. Stjórnarformaður Polar Seafood er Henrik Leth en hann hefur lengi verið einn af helstu forystumönnum grænlensks sjávarútvegs.
Árið 2014 hafði Henrik Leth samband við Gunnþór Ingvason og tjáði honum að á Grænlandi væri í umræðunni að einhverjir áformuðu að koma upp fiskimjöls- og uppsjávarvinnslu í Ammasalik á austurströnd landsins. Taldi Henrik þessi áform mjög óraunhæf og áleit að þau væru sett fram í þeim tilgangi að ná kvóta hjá grænlenskum stjórnvöldum. Til þess að fá nánari upplýsingar um tæknileg málefni og kostnað við uppbyggingu eins og þessa leitaði hann til Gunnþórs Ingvasonar. Gunnþór vissi að Samherji hefði nýlega látið gera áætlanir um slíka uppbyggingu í Marokkó og einfaldast væri að skoða þær. Sendi hann Samherjamönnum tölvupóst þar sem hann bað um að fá þessar upplýsingar þó þær ættu við um uppbyggingu í Afríku. Þar með var málinu lokið að hans hálfu.
Henrik Leth segir eftirfarandi um þetta: „Ég leitaði til Gunnþórs um upplýsingar einfaldlega vegna þess að Síldarvinnslan hefur mikla reynslu og þekkingu á uppbyggingu og rekstri vinnslufyrirtækja. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að hægt væri að búa til svona neikvæða frétt um greiðvikni hans í minn garð. Þetta er sorglegt dæmi um óvönduð vinnubrögð fjölmiðla.“
Af framansögðu má ljóst vera að orð Gunnþórs Ingvasonar í tölvupóstinum voru slitin úr samhengi í umræddri frétt. Síldarvinnslan harmar þann villandi og meiðandi málflutning sem birtist í fréttinni.