Hanna Birna Kristjánsdóttir braut gegn reglum um hæfi í samskiptum sínum við Stefán Eiríksson lögreglustjóra að mati umboðsmanns Alþingis. Þetta sagði fréttastofa Stöðvar 2 í fréttum sínum í kvöld og hafði eftir heimildum sínum. Umboðsmaður Alþingis hefur ekki skilað áliti en Stöð 2 segir það væntanlegt í næstu viku.

Heimildir Stöðvar 2 herma að samkvæmt umboðsmanni hafi Hanna Birna með samskiptum sínum við lögreglustjóra brotið gegn óskráðri reglu um samskipti , en það muni ekki hafa nein lögformleg áhrif.