Reiknistofa lífeyrissjóða (RL) sagði í síðustu viku upp samningi sínum við fyrirtækið Init ehf. sem sér um rekstur og þróun á lífeyris-, iðgjalda- og verðbréfakerfinu Jóakim. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Gildi lífeyrissjóðs.

Reiknistofu lífeyrissjóðanna er eignarhaldsfélag sem heldur utan um eignarhald tíu lífeyrissjóða, þar á meðal Birtu og Gildi, á kerfinu Jóakim. Kveikur fjallaði um Init í lok apríl síðastliðins en umfjöllunin snerist meðal annars um arðgreiðslur og dótturfélög fyrirtækisins.

Í tilkynningu RL kemur að þar sem Jóakim er lykilkerfi í starfi þeirra lífeyrissjóða og stéttarfélaga sem nota kerfið, var við uppsögn samningsins lögð áhersla á áframhaldandi rekstur þess næstu mánuði meðan RL tekur ákvörðun um næstu skref.

Þá hefur RL gengið frá  endurskoðunarfyrirtækið EY verið um úttekt á starfsháttum Init og RL. Félagið mun taka út framkvæmd og efndir Init á samningi við RL og sölu félagsins á þjónustu til þriðja aðila. Einnig verður framkvæmd RL á samningnum og eftirfylgni tekin til skoðunar. Stefnt er að því að EY skili niðurstöðum fyrir lok júnímánaðar og verða þær birtar opinberlega.

Þá kemur einnig fram að Almar Guðmundsson hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri RL og hefur hann þegar hafið störf.