Samtök iðnaðarins gera athugasemd við framkvæmd verkefnisstjórar á mati á mögulegri nýtingu virkjunarkosta á Íslandi. Að mati SI er mikill veikleiki í þingsályktunartillögu um áætlun um vernd og orkunýtingu landssvæða og vinnu verkefnisstjórar 3. áfanga rammaáætlunar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins.

„Samtök iðnaðarins eru ósammála þeirri niðurstöðu verkefnisstjórnarinnar að byggja ákvörðun um vernd og nýtingu einungis á niðurstöðu tveggja faghópa af fjórum. Þar með vantar samfélagsleg og efnahagsleg áhrif virkjana í rammaáætlun.

Í umsögn sem Samtök iðnaðarins hafa sent atvinnuveganefnd Alþingis kemur fram að samtökin hafi alla tíð stutt þau markmið sem sett eru fram í lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun en þær tillögur sem fyrir liggja byggja nær eingöngu á þröngri nálgun sem er mat á neikvæðum áhrifum á umhverfi, náttúru og ferðamennsku“ segir í tilkynningunni.

Mikilvægi nýtingar raforku

Samtök iðnaðarins taka einnig fram að tæplega fjórðungur útflutningstekna þjóðarinnar byggir á nýtingu raforku og vilja því að eins fljótt og kostur er verði lögboðinni vinnu faghópa sem upp á vantar komið inn í matið.

„Þá gera Samtök iðnaðarins einnig athugasemdir við vægi neikvæðra áhrifa ferðamennsku í matinu og benda á að mörg orkuver eru fjölsóttir ferðamannastaðir og nægir að nefna Bláa lónið í því samhengi ásamt gestastofum virkjana um allt land. Orkufyrirtæki hafa lagt sig fram við að fella orkumannvirki vel að náttúrunni og sýna athuganir að ferðamenn hafa jákvætt viðhorf til vistvænnar orku og orkuvinnslu. Þessir tveir mikilvægu málaflokkar geta því farið vel saman“ segir að lokum.