Flugvélin TF-PRO, sem er ein af flugvélum í flota Wow air, var í gærkvöldi kyrrsett að beiðni leigusala vélarinnar. Flugvélin átti að ferja farþega frá flugvellinum í Montreal í Kanada í gærkvöldi. Mbl.is greinir frá þessu , en samkvæmt þeirra heimildum þá er ekki ljóst hvort Wow air takist að losa vélina að nýju með greiðslu til flugvélasalans. Samkvæmt upplýsingum vefsíðunnar flightradar24.com er vélin enn staðsett í Kanada.

Farþegar sem áttu flug með flugvélinni auk áhafnar, var samkvæmt mbl.is sent á hótel í nótt og var þeim tilkynnt að vegna „tæknilegra örðugleika“ yrði fluginu frestað þar til í kvöld. Nú í nótt hafi svo önnur vél félagsins, TF-DOG, sem var nýkomin var úr flugi frá Frankfurt til Keflavík­ur, verið send af stað til Montréal og verði hún nýtt til að ferja strandaglóp­ana heim í kvöld. Samkvæmt upplýsingum frá flugvellinum í Montréal sé vélin á áætlun kl. 19:05 á staðartíma í kvöld.

Samkvæmt heimildum mbl.is missti Wow air nýtingarréttinn á TF-PRO vegna brota á samningsskilmálum. Þá segir að eigandi vélarinnar, Jin Shan 20 Ireland Company Limited, sem er í eigu flugvélaleigunnar Bocomm, hafi komið vélinni í verkefni annarsstaðar.

Mbl.is kveðst hafa leitað viðbragða Wow air við stöðunni sem upp er komin í Kanada en engin svör hafi borist þaðan.

Þá segir að TF-PRO sé ekki eina flugvélin sem WOW air leigir frá Jin Shan 20 en TF-NOW, sem WOW air hafi verið með í leiguverkefnum í Bandaríkjunum og á Kúbu, sé einnig í eigu félagsins. Sú vél sé samkvæmt opinberum upplýsingum stödd í Santa Clara á Kúbu.