Arion banki.
Arion banki.
© Axel Jón Fjeldsted (VB MYND/AXEL JÓN)
Greiningardeild Arion banka spáir óbreyttum stýrivöxtum á næsta vaxtákvörðunarfundi þann 17. ágúst.

"Í ljósi þeirrar stöðu sem hagkerfið er í um þessar mundir er það mat greiningardeildar að vaxtahækkun er ekki til þess fallin að slá á auknar verðbólguvæntingar, ef eitthvað er gætu verðbólguhorfur versnað - þar sem fjármagnskostnaður hins opinbera og fyrirtækja hækkar. Slík hækkun myndi hafa neikvæð áhrif á efnahagsuppbyggingu í landinu og þann brothætta bata sem framundan er. Þá yrði vaxtahækkun algjörlega á skjön við það sem er að gerast úti í heimi en biðstaða virðist vera á frekari vaxtahækkunum í Evrópu eftir hrun fjármálamarkaða síðustu daga. Þrátt fyrir að áhrif hrunsins sé ekki farið að gæta hér heima þá er óvissan enn mikil og telur greiningardeild að Seðlabanki Íslands muni fylgja öðrum seðlabönkum úti í heimi og kjósi þannig að rugga ekki bátnum á meðan óvissa ríkir á alþjóðamörkuðum," segir í markraðspunktum greiningardeildar Arion banka.