Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) segja að samkvæmt rannsóknum sínum séu verðlækkanir á fötum og skóm í innlendum fataverslunum svipaðar og við mátti búast í kjölfarið af tollaniðurfellingu. Samtökin segjast ekki í minnsta vafa um að niðurfelling tolla af fötum og skóm muni skila sér til neytenda á sama hátt og skattkerfisbreytingar fyrri ára hafa gert.

Um 64% af innfluttum fatnaði og skóm báru 15% tolla fram að síðustu áramót þegar tollurinn var feldur niður. Þessi aðgerð leiddi af sér töluverða kostnaðarlækkun fyrir innflytjendur og niðurfelling tollana ætti því, að öðru óbreyttu, að leiða til ríflega 8% verðlækkunar á þessum vöruflokkum.

SVÞ segir að þegar skoðað sé hvort tollaniðurfellingin hafi skilað verðlækkun til neytenda þurfi að líta til fleiri þátta en opinberra gjalda. Innkaupsverð varanna, gengi gjaldmiðla, laun og annar innlendur kostnaður séu meðal þess sem hefur áhrif á rekstur þessara fyrirtækja og þar af leiðandi á þróun verðs á innlendum markaði.

Reiknuðu vísitölu sem vegur saman kostnaðarliði

Við mat á því hvort tollalækkanirnar hafi skilað sér með fullnægjandi hætti til neytenda þurfi að skoða þróun annarra kostnaðarliða frá því að tollaniðurfellingin tók gildi. Því hafi efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins reiknað vísitölu sem vegur saman þessa kostnaðarliði og ber hana saman við verðþróunina eins og hún hefur verið skv. verðvísitölu Hagstofunnar.

SVÞ segja að samkvæmt vísitölunni séu verðlækkanir á fötum og skóm í innlendum fataverslunum svipaðar og við mátti búast en samkvæmt henni hafi verð lækkaði að meðaltali um 3,9% síðustu 4 mánuði en reiknaða vísitalan gerir ráð fyrir 3,7% verðlækkun.

SVÞ segja helstu ástæðu þess að verðlag hefur ekki lækkað eins mikið og tollabreytingarnar einar og sér gæfu tilefni til, er mikil hækkun innlendra kostnaðarliða. Hæst bera miklar launahækkanir en á tímabilinu hækkaði launavísitala Hagstofunnar um 4,8% og annar innlendur kostnaður um 0,7%. Þetta dregur úr áhrifum tollaniðurfellingarinnar og hagstæðrar gengisþróunar. En eftir stendur að niðurfelling tolla hefur skilað íslenskum neytendum um 4% lægra verði á fötum og skóm.

Getur tekið 4-5 mánuði að sjá áhrif

SVÞ segja að verðbreytingar komi ekki fram strax og ný lög taka gildi. Í fataverslun á meðalkaupmaðurinn um 120 daga vörubirgðir og því getur það því tekið 4 – 5 mánuði að sjá áhrif slíkra breytinga koma endanlega fram í verði vöru. Engu að síður sýni kannanir að verulegar lækkanir séu þegar komnar fram í einstaka vöruflokkum, s.s. kvenskóm, sem hafa lækkað um 17%.

SVÞ segist ekki í minnsta vafa um að niðurfelling tolla af fötum og skóm muni skila sér til neytenda á sama hátt og skattkerfisbreytingar fyrri ára hafa gert það. Nýjasta dæmið í því sambandi er afnám vörugjalda um áramótin 2014-2015, en allar mælingar sýna að afnám þeirra gjalda skilaði sér í fullu til neytenda.