Stjórn Félags atvinnurekenda (FA) telur þá ákvörðun stjórnarflokkanna um að slíta viðræðum við Evrópusambandið vera skaðlega fyrir íslensk fyrirtæki. Hún lokið augljósum valkostum í efnahagsmálum á tímapunkti þar sem engin þörf er á slíkum vatnaskilum. Félagið mótmælir ákvörðuninni og segir í tilkynningu að með henni fækki mögulegum valkostum Íslands í peningamálum

Í tilkynningu Félags atvinnurekenda segir:

„Engin skýr stefnumörkun liggur fyrir um framtíðarskipan peningamála og því lítil skynsemi í að útiloka augljósa valkosti að svo komnu máli. Stjórn FA tekur undir það sjónarmið að aðildarviðræður eigi að hafa sinn gang, enda er það eina leiðin til að fá á borðið upplýsingar til að greiða atkvæði um á málefnalegum grunni. Um endanlegan samning við ESB á þjóðin að sjálfsögðu að greiða atkvæði. Þannig getur hún ráðið úrslitum – af eða á. Í skoðanakönnun meðal félagsmanna FA sem framkvæmd var í lok janúar sl. kom m.a. fram að 60,7% félagsmanna vildu halda áfram aðildarviðræðum og 52,5% töldu að íslenska krónan væri ekki framtíðargjaldmiðill fyrir Ísland.

Félag atvinnurekenda er eitt fjögurra félaga og samtaka sem standa að gerð skýrslu um stöðu aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Alþjóðamálastofnun HÍ sér um gerð skýrslunnar og er hún væntanleg er í apríl.