Samtök verslunar og þjónustu segja að vinnubrögð verðlagseftirlits ASÍ, sem birti niðurstöður úr nýrri verðkönnun í gær, geti vart talist boðleg þar sem ekki hafi verið hirt um að gera grein fyrir ástæðum þess að verð á einstökum vörum kunni að hafa hækkað milli kannana. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Niðurstaða könnunarinnar var sú að vörukarfan hefði hækkað í verði í öllum verslunum nema einni frá því í júní. Samtök verslunar og þjónustu segja hins vegar að orsökina megi finna í hækkun á heildsöluverði mjólkur. „Eins og verðlagseftirliti ASÍ er fullkunnugt um tók verðlagsnefnd búvara þá ákvörðun í júlí s.l. að hækka verð á mjólk og mjólkurafurðum um 3,58% og að hækka smjör sérstaklega um hvorki meira né minna en um 11,6%,“ segir í tilkynningunni.

Samtökin segjast í kjölfarið hafa mótmælt ákvörðuninni kröftuglega og bent á að hún kæmi á afar óheppilegum tíma í kjölfar erfiðra kjarasamninga sem hefðu það að markmiði að færa launafólki í landinu verulega kaupmáttaraukningu. Forsendan fyrir því að markmiðið næðist væri að unnt væri að halda aftur af verðhækkunum á vöru og þjónustu.

Almenningur heyri sannleikann

„ASÍ og aðrir málsvarar launafólks sendu að vísu frá sér mótmæli vegna ákvörðunar verðlagsnefndar búvara. Þau mótmæli hefðu að ósekju mátt vera kröftugri, þar sem ákvörðunin beindist fyrst og fremst gegn hagsmunum hins almenna félagsmanns í verkalýðshreyfingunni.,“ segir í tilkynningunni.

Samtökin segja enn fremur að ekki þurfi að koma ASÍ á óvart að sú ákvörðun sem verðlagsnefnd búvara tók í júlí endurspeglist í verði mjólkur og mjólkurvara.

„Það ber hins vegar ekki vott um fagleg vinnubrögð af hálfu verðlagseftirlits ASÍ að minnast ekki einu orði á það hvaða orsakir liggi þar að baki. Á meðan verðlagseftirlitið heldur áfram að stunda vinnubrögð sem þessi heldur trúverðugleiki þess áfram að minnka. Almenningur hlýtur að vilja heyra allan sannleikann,“ segir að lokum í tilkynningunni.