Karl Steinar Óskarsson, framkvæmdastjóri Birtíngs útgáfufélags hefur sent frá sér fréttatilkynningu vegna umfjöllunar Viðskiptablaðsins um að hætt hafi verið við kaup Pressunnar á Birtíngi. Segja þeir greiðsla inn á kaupverðið sem Birtíngur fékk hafi ekki komið frá Pressunni, heldur þriðja aðila, sem samið verður við vegna rifta á kaupunum.

Í samkomulagi um riftun á kaupunum kemur fram að hvorugur aðilinn skuldi hinum fjármuni eftir undirritun þess. Samt sem áður er það tekið fram í yfirlýsingunni að Birtíngur skuldi Pressunni enga fjármuni vegna rekstrar heldur skuldi Pressan Birtíngi verulega fjármuni.

„Af hálfu eigenda og stjórnenda Birtíngs útgáfufélags ehf. skal ítrekað að samkomulag um riftun var undirritað af hálfu allra hlutaðeigandi aðila hinn 10. maí sl. Forsendur kaupanna voru brostnar og Pressan ehf. ekki fær um að standa við skuldbindingar sínar líkt og fram kemur í samkomulaginu.

Greiðsla inn á kaupverðið kom á sínum tíma frá 3ja aðila vegna vanefnda Pressunnar ehf. Í samkomulaginu um riftun felst að sú greiðsla verður gerð upp með samkomulagi við þann aðila. Samkomulag hefur þegar náðst um þá greiðslu og er Pressunni ehf. óviðkomandi eftir undirritun samkomulagsins líkt og þar er staðfest.

Í samkomulaginu segir einnig að hvorugur aðilinn skuldi hinum fjármuni eftir undirritun þess. Þá er rétt að undirstrika að Birtíngur ehf. skuldar enga fjármuni til Pressunnar ehf. vegna rekstrar heldur skuldar Pressan ehf. Birtíngi ehf. verulega fjármuni.“