Danska fjarskiptafyrirtækið Segtel hefur hætt yfirtökuviðræðum við danska breiðbandsfyrirtækið ComX, sem íslenska fjölmiðlafyrirtækið Dagsbrún hefur verið orðað við. Þetta kemur fram í vefútgáfu danska tímaritsins computerworld.dk.

Danska viðskiptablaðið Börsen sagði frá því í síðasta mánuði að Dagsbrún, sem er að hluta til í eigu Baugs, eigi í yfirtökuviðræðium við ComX og hafi einnig sýnt A Plus Telecom og Dansk Bredband áhuga. Ef það reynist rétt að Segtel hafi slitið viðræðum við ComX ætti það að styrkja stöðu Dagsbrúnar. Ekki hefur þó fengist staðfest hvort fyrirtækið hafi enn áhuga á ComX.

Nýr stjórnarformaður Dagsbrúnar, Þórdís Sigurðardóttir, sagði í samtali við Viðskiptablaðið þann 11. nóvember að hún væri sannfærð um að það sé góður ?business" að reka fjölmiðla.

Hún segir félagið horfa út og mikið sé að tækifærum, bæði hér heima og erlendis. Þórdís segir fjárfestingagetu Dagsbrúnar vera um 15 milljarðar. Baugur á tæp 29% í Dagsbrún, sem rekur fjölmiðlasamsteypuna 365 og fjarskiptafyrirtækið Og Vodafone.

Samkvæmt heimildum Börsen eru skuldir ComX töluverðar og nema um 55 milljónum danskra króna (548 milljónum íslenskra króna) og félagið hefur einnig ekki greitt virðisaukaskatt í tæpt hálft ár.