Twitter hefur gefið það út að fyrirtækið sitji undir rannsókn Alríkisviðskiptastofnunar Bandaríkjanna vegna notkunar á símanúmerum og netföngum notenda sinna til að bæta miðlun auglýsinga. Financial Times segir frá .

Fram kemur í gögnum sem Twitter skilaði til eftirlitsaðila að kostnaður við að útkljá málið muni kosta allt frá 150 milljónum til 250 milljóna dollara.

Fyrirtækið viðurkenndi í október síðastliðnum að það hefði „óviljandi“ notað persónulegar upplýsingar, sem notendur útvega vegna öryggisaðstæðna, til að bæta miðlun auglýsinga á árunum 2013 til 2019.

Twitter, sem hefur höfuðstöðvar í San Fransisco, sagði á sínum tíma að það hefði notað upplýsingarnar til að að tengja notendur við lista auglýsenda en hélt þó fram að um mistök hafi verið að ræða.