Sumarið 2009 bauð Síminn notendum áskrift að 3G og netlykli fyrir 0 krónur út sumarið. Með því misnotaði fyrirtæki markaðsráðandi stöðu sína. Þetta er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins sem ákveðið hefur að sekta Símann um 60 milljónir króna fyrir brotið. Í tilkynningu frá eftirlitinu segir:

„Í umræddu tilboði Símans fólst að nýjum viðskiptavinum Símans í gagnaflutnings-þjónustu, þar sem 3G netlykill er notaður, var boðinn frír 3G netlykill og frí áskrift að þjónustunni í allt að þrjá mánuði gegn bindingu í viðskiptum í sex mánuði. Fjarskiptafyrirtækið Nova kvartaði til Samkeppniseftirlitsins yfir tilboðinu. Tók Samkeppniseftirlitið bráðabirgðaákvörðun dags. 2. júlí 2009, þar sem Símanum var bannað að bjóða umrætt tilboð.

Í endanlegri ákvörðun, dags. 16. febrúar sl. nr. 30/2011, kemst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að Síminn hafi verið með markaðsráðandi stöðu á viðkomandi markaði. Jafnframt er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að Síminn hafi misnotaði þá stöðu sína með undirverðlagningu í framangreindu tilboði. Í undirverðlagningu felst í aðalatriðum að markaðsráðandi fyrirtæki selur vöru eða þjónustu undir kostnaðarverði.“

Ennfremur segir að háttsemi Símans hafi falist í aðgerðum sem ekki gátu talist til eðlilegrar samkeppni í skilningi samkeppnislaga. Símanum er því gert að greiða 60 milljónir króna í stjórnvaldssekt.