Seðlabankinn hafnar því að tæki hans séu máttlaus, að aðhaldsstefna hans hafi engin áhrif og að verðbólgumarkmið hans séu tilraun sem ekki tókst, að því er fram kom í erindi Ingimundar Friðrikssonar, seðlabankastjóra á fundi í dag.

„Fullvíst má telja að ef ekki væri fyrir strangt aðhald peningastefnunnar hefði verðbólga orðið miklu meiri en raun ber vitni með tilheyrandi afleiðingum fyrir heimili og fyrirtæki,” sagði Ingimundur meðal annars.

Hann lagði áherslu á að Seðlabankinn telji ekki val standa á milli verðstöðugleika og fjármálastöðugleika.

„Verði slakað á markmiðinu um verðstöðugleika má fullyrða að það myndi grafa verulega undan trúverðugleika peningastefnunnar, verðbólga og ekki síður verðbólguvæntingar myndu aukast til muna sem á skömmum tíma gæti leitt til víxlhækkana verðlags og launa og lækkunar gengisins,” sagði hann.

Vaxtalækkun eykur ekki aðgang að lánsfé

„Enda þótt innlend fjármálafyrirtæki kynnu í fyrstu að hagnast á lækkun gengis og meiri verðbólgu myndi slík framvinda fljótt koma harkalega niður á skuldugum heimilum og fyrirtækjum og þar með leiða til útlánatapa. Frá sjónarhóli fjármálastöðugleika er því afar brýnt að halda verðbólgu í skefjum. Þá er rétt að leggja áherslu á þá augljósu staðreynd að aðgangur innlendra banka að erlendu lánsfé breytist ekki þótt Seðlabankinn lækki vexti,” sagði Ingimundur.