Eins og komið hefur fram í fréttum hefur Seðlabanki Bandaríkjanna gert tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamninga við fjóra seðlabanka til þess að leysa úr bráðaþörf fyrir Bandaríkjadali sem upp kom í viðkomandi löndum.

Samningar þessir eru annars eðlis en þeir sem Seðlabanki Íslands gerði við þrjá norræna seðlabanka í maí sl.

Á vef Seðlabanka Íslands kemur fram að Seðlabankinn hefur átt viðræður við Seðlabanka Bandaríkjanna á undanförnum vikum.

„Ekki voru taldar ástæður eða efni til þess að gera á þessu stigi samning við Seðlabanka Íslands. Alls ekki væri þó útilokað að slíkur samningur yrði gerður síðar ef aðstæður gefa tilefni til,“ segir á vef Seðlabankans.