Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 1,25 prósentur í 15%.

„Forsendur verðbólguspár sem birtist í Peningamálum í nóvember sl. og fól í sér óbreytta stýrivexti fram á síðari helming þessa árs hafa brugðist," segir í tilkynningu frá Seðlabankanum.

„Verðbólga hefur reynst mun meiri en spáð var og verðbólguvæntingar hafa vaxið. Eftirspurn hefur einnig verið meiri en búist var við. Gengi krónunnar hefur lækkað töluvert meira en reiknað var með í frá-viksspánni sem birt var í nóvemberhefti Peningamála. Í henni var gert ráð fyrir að brugðist yrði við slíkri þróun með hækkun stýrivaxta. Raungengi krónunnar er nú mjög nærri sögulegu lágmarki síðustu áratuga sem það náði í nóvember 2001. Gangi lækkunin ekki til baka er einsýnt að verðbólga eykst mikið og langvarandi verðbólguvandi væri fyrir stafni ef ekkert yrði að gert með tilheyrandi víxlhækkunum verðlags, launa og gengis erlendra gjaldmiðla. Lækkun gengis krón-unnar undanfarnar vikur kemur einnig illa við efnahagsreikninga skuldsettra heimila og fyrirtækja, sem grefur undan stöðugleika fjár-málakerfisins til lengri tíma litið. Því er mikilvægt að gengislækkunin gangi sem fyrst til baka,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir einnig að versnandi fjármálaskilyrði í heiminum hafi leitt til þess að erfiðara er en áður að fjármagna viðskiptahalla.

„Aðlögun í þjóðarbúskapnum með samdrætti eftirspurnar verður því tæpast umflúin. Hún verður því sárs¬aukafyllri sem verðbólga fær að leika lengur lausum hala. Því er óhjá¬kvæmilegt að reka áfram mjög aðhaldssama peningastefnu þannig að böndum verði komið á verðbólgu og verðbólguvæntingar og gengi krónunnar verði traustara í sessi,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

Fimmtudaginn 10. apríl n.k. gefur Seðlabankinn út Peningamál með nýrri þjóðhags- og verðbólguspá. Um leið tilkynnir bankastjórn næstu ákvörðun sína um vexti.