Bankastjórn Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,5 prósentur frá og með 21. september n.k. í 6,75%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 1,45 prósentur síðan í maí sl. Í ársfjórðungsritinu Peningamálum sem bankinn birtir á heimasíðu sinni eru færð rök fyrir nauðsyn þess að hækka vexti nú.