Seðlabanki Íslands hefur sent frá sér tilkynningu þar sem óskað er eftir því að lögaðilar sem hafa áhuga á að taka erlend lán, sem tekin yrðu í krónum en endurgreidd í erlendum gjaldeyri, sendi um það bréf til Seðlabankans fyrir 11. maí 2009. Fyrirhugað er að þessi aðgerð verði endurtekin eftir u.þ.b. mánuð segir í tilkynningu bankans.

Í tilkynningu bankans kemur fram að skilyrði fyrir því að Seðlabankinn heimili slíkar lántökur séu að lánstími sé hið minnsta 7 ár og að fyrirtækið hafi fyrirsjáanlegar tekjur í erlendum gjaldmiðli sem nægi til að standa skil á greiðslum vegna lánsins. Erindi vegna þessa skal stíla á bankastjóra Seðlabanka Íslands.