Seðlabankinn hvetur útflytjendur og aðra sem eiga gjaldeyri eindregið til að bjóða hann til sölu á tilboðsmarkaði fyrir gjaldeyri í þeim tilgangi að auka veltu og styrkja verðmyndun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabankanum.

Bankinn segir viðkomandi aðila geta snúið sér til fjármálafyrirtækja sem eiga viðskipti við Seðlabankann og falið þeim að koma tilboðum sínum á framfæri.

„Verðmyndun utan tilboðsmarkaðar er til þess fallin að seinka heilbrigðum viðskiptaháttum með gjaldeyri og skaða tilraunir til að koma þeim í eðlilegt horf. Auk þess eru utanmarkaðsviðskipti ógagnsæ og áhættusöm,“ segir í tilkynningu Seðlabankans.

Í tilkynningu bankans kemur fram að vegna hinna sérstöku aðstæðna sem upp komu í rekstri banka nú í október lögðust niður viðskipti á millibankamarkaði með gjaldeyri. Á þeim markaði sinntu stóru viðskiptabankarnir þrír hlutverki viðskiptavaka samkvæmt reglum um tíðni tilboða, verðmyndun og fleira.

Í staðinn kom Seðlabankinn upp svonefndum tilboðsmarkaði fyrir gjaldeyri, samanber tilkynningu á heimasíðu bankans 15. október síðastliðinn.

Á þeim markaði eru fleiri fjármálafyrirtæki en við fyrri skipan en taka ekki á sig skyldur viðskiptavaka. Niðurstöður um viðskipti og verð eru birtar daglega á heimasíðu Seðlabankans.

Fjármálafyrirtæki sem starfsleyfi hafa samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki geta stofnað viðskiptareikning í Seðlabanka Íslands og átt við hann viðskipti.

Þau sem það hafa gert eru:

  • NBI (Nýi Landsbanki),
  • Nýi Glitnir banki,
  • Nýi Kaupþing banki,
  • Straumur fjárfestingarbanki,
  • Sparisjóðabankinn,
  • Byr sparisjóður,
  • Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis,
  • Sparisjóðurinn í Keflavík,
  • Sparisjóður Suður-Þingeyinga,
  • Sparisjóður Strandamanna,
  • Sparisjóður Vestmannaeyja,
  • Sparisjóðurinn Dalvík,
  • Sparisjóður Höfðhverfinga,
  • VBS fjárfestingarbanki,
  • MP fjárfestingarbanki,
  • Saga Capital,
  • Askar Capital,
  • Frjálsi fjárfestingarbankinn,
  • Lánasjóður sveitarfélaga,
  • Borgun
  • og Valitor.